Illgresi

Sigur Rós · Með Suð Í Eyrum Við Spilum Endalaust [2008]

Þú sefur alveg til hádegis

Þú deyrð en lifnar við

Laufblöðin breyta um lit



Þú finnur til, ferð á fætur

Íklæddur regnkápu

Þú heldur út í skammdegið



Þú rífur úr hjartarætur

Sem þú treður á

Með hendur í vösum



Með nóg kominn

Í votu grasinu geng

Þangað til



Það skín á mig í gegnum trjágreinar

Lít upp og lifna við

Laufblöðin breyta um lit



Við finnum með, festum rætur

Afklæðum og hjörtum

Við höldum út í góðan dag



Gróðursetjum og gefum líf

og við springum út

Með hendur úr vösum



Í mold rótar

Núna fjarlægjum við

Hugsum ljóta



Tíminn lagar allt, gefur líf

Kyndir upp bál

Logar sálar



Ekki lengur kalt, hef aftur líf

Lifnar mín sál

Heiminn mála